Gengi krónunnar styrktist um 0,90% í dag en veltan á millibankamarkaði nam 27,1 milljarði króna. Gengisvísitalan stóð í 158,15 stigum við upphaf viðskipta en lokagildi hennar er 156,70. Gengi Bandaríkjadals er 81,35 krónur, pundið er 150,85 krónur og evran 120,45 krónur, samkvæmt upplýsingum frá gjaldeyrisborði Glitnis.