Gengi krónunnar veiktist um 1,28% á gjaldeyrismarkaði í dag en veltan á millibankamarkaði var 14,5 milljarðar króna. Við upphaf viðskipta stóð gengisvísitalan í 156,70 stigum en í lok dags var hún 158,70 stig. Gengi Bandaríkjadals er 82,37 krónur, evran er 121,90 krónur og pundið 153,06 krónur.