Tap VBS fjárfestingarbanka nam tæplega 871 milljón króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Á sama tímabili í fyrra nam hagnaður bankans 1.114 milljónum króna. Segir í tilkynningu frá bankanum að afrakstur bankans af grunnstarfsemi er góður þrátt fyrir að reksturinn sýni neikvæða niðurstöðu.
Eigið fé, samkvæmt árhlutareikningi, er um 7,1 milljarður og eiginfjárhlutfall (CAD) 16,9%. „Í uppgjörinu kemur fram að bankinn nýtti sér sterka eiginfjárstöðu og færði varúðarfærslu sem nam 765 milljónum króna vegna mögulegrar virðisrýrnumar útlána. Einnig voru óskráðar eignir færðar niður um tæplega 400 milljónir króna," að því er segir í tilkynningu frá VBS fjárfestingarbanka.