Í júlímánuði voru fluttar út vörur fyrir 34,1 milljarð króna og inn
fyrir 51,6 milljarða króna fob (55,8 milljarða króna cif). Vöruskiptin
í júlí, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 17,5 milljarða
króna. Í júlí 2007 voru vöruskiptin óhagstæð um 15,6 milljarða króna á
sama gengi.
Vöruskiptin hagstæðari fyrstu 7 mánuði ársins en á sama tíma í fyrra
Fyrstu sjö mánuðina 2008 voru fluttar út vörur
fyrir 241 milljarð króna en inn fyrir 282,8 milljarða króna fob
(307,1 milljarð króna cif). Halli var á vöruskiptunum við útlönd,
reiknað á fob verðmæti, sem nam 41,9 milljörðum en á sama tíma árið
áður voru þau óhagstæð um 65,0 milljarða á sama gengi.
Vöruskiptajöfnuðurinn var því 23,1 milljarði króna hagstæðari en á sama
tíma árið áður, að því er fram kemur á vef Hagstofu Íslands.
Mest aukning í útflutningi á áli
Fyrstu sjö mánuði ársins 2008 var verðmæti vöruútflutnings 27,8 milljörðum eða 13,0% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 50,4% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 44,8% meira en árið áður. Sjávarafurðir voru 37,0% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 5,7% minna en á sama tíma árið áður. Mest aukning var í útflutningi á áli en á móti kom samdráttur í útflutningi sjávarafurða, aðallega frystra flaka og í útflutningi skipa og flugvéla.
Fyrstu sjö mánuði ársins 2008 var verðmæti vöruinnflutnings 4,7 milljörðum eða 1,7% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Mest aukning varð í innflutningi á hrá- og rekstrarvörum og á eldsneyti og smurolíum en á móti kom samdráttur í innflutningi á fjárfestingarvöru og flutningatækjum, aðallega flugvélum.