Tap á rekstri móðurfélags fjárfestingarfélagsins Milestone nam 13,4 milljörðum króna á fyrri hluta ársins en tap samstæðunnar allrar nam 34,9 milljörðum króna eftir skatta. Á sama tímabili á síðasta ári var 27,2 milljarða króna hagnaður á rekstrinum.
Eigið fé Milestone lækkaði um 14,9 milljarða frá áramótum og nam eigið fé móðurfélags 69 milljörðum þann 30. júní 2008, en eigið fé samstæðu var 55 milljarðar.
Heildareignir móðurfélags voru 134 milljarðar en heildareignir samstæðu námu 513 milljörðum. Eiginfjárhlutfall móðurfélags var 51% og eiginfjárhlutfall á samstæðugrunni nam 11%.
Sænska fjármálafyrirtækið Moderna, áður Invik, er 92% af heildareignum Milestone. Heildareignir Moderna voru 444 milljarðar í lok tímabilsins, eigið fé þess var 59 milljarðar, eiginfjárhlutfall Moderna nam 13,2% og eiginfjárgrunnur félagsins var 76% umfram þau mörk sem sænska fjármálaeftirlitið setur.