Gengi krónunnar veiktist um 1,47% á gjaldeyrismarkaði í dag. Gengisvísitalan stóð í 167,40 stigum við upphaf viðskipta en endaði í 169,90 þegar markaðir lokuðu klukkan 16. Gengi Bandaríkjadals er 91,05 krónur, pundið er 162,85 krónur og evran 129,20 krónur. Veltan á millibankamarkaði nam 44,5 milljörðum króna samkvæmt upplýsingum frá gjaldeyrisborði Glitnis.
Um tíma fór gengisvísitalan yfir 171 stig en hækkun vísitölunnar gekk síðan að hluta til baka. Þrát fyrir það hefur krónan aldrei verið veikari við lokun markaða.