Gengi krónunnar hefur veikst um 1% frá því viðskipti hófust á gjaldeyrismarkaði klukkan 9:15 í morgun. Gengisvísitalan var 169,85 stig við opnun en er nú 171,55 stig. Gengi Bandaríkjadals er 91,95 krónur, pundið 164,35 krónur og evran 130,50 krónur. Veltan á millibankamarkaði nemur 12,5 milljörðum króna samkvæmt upplýsingum frá gjaldeyrisborði Glitnis.