Kauphöll Íslands hefur ákveðið að áminna Nýsi hf. opinberlega og beita félagið févíti að fjárhæð kr.
1.500.000 vegna atvika þar sem útgefandi er talinn hafa gerst brotlegur við
ákvæði reglna fyrir útgefendur fjármálagerninga í Kauphöllinni.
Kauphöllin telur að Nýsi hf. hafi borið að birta tilkynningu um slæma fjárhagsstöðu félagsins og fyrirhugaða endurskipulagningu um leið og ljóst var að dráttur yrði á afborgunum af verðbréfum útgefanda sem voru í viðskiptum í Kauphöllinni.
„Upplýsingaskyldu útgefanda var ekki fullnægt við það að haft var
samráð við eigendur verðbréfanna. Svo mikilsverðar upplýsingar þurfa að koma
fram í opinberri tilkynningu. Einnig er það ámælisvert að verðmótandi
upplýsingar hafi komið fram í fjölmiðlum áður en þær voru birtar með
sannanlegum og réttum hætti," að því er segir í tilkynningu á vef Kauphallar Íslands.
Þann 2. apríl sl. birti Nýsir tilkynningu vegna ársuppgjörs félagsins fyrir árið 2007. Kom þar meðal annars fram að stjórn félagsins hefði gert samning við Landsbanka Íslands um aðstoð við sölu á eignum, öflun nýs hlutafjár og fjárhagslega endurskipulagningu lána til að tryggja framgang þeirra verkefna sem félagið væri með í þróun.
Enn fremur kom fram í athugasemdum með ársreikningnum að stjórn félagsins hefði fulla trú á því að fjárhagsleg endurskipulagning félagsins næði fram að ganga. Þó var sá fyrirvari á að ef endurskipulagning félagsins næði ekki fram að ganga af einhverjum ástæðum gæti það valdið mikilli óvissu um framtíð félagsins.
Um miðjan júní sl. var upplýst í fjölmiðlum um erfiða fjárhagsstöðu Nýsis hf. og fyrirhugaða endurfjármögnun og endurskipulagningu á fjármálum félagsins, þ. á m. í tengslum við greiðslufall á verðbréfum félagsins sem voru í viðskiptum í Kauphöllinni.
Í kjölfarið fór Kauphöllin fram á að félagið birti opinberlega tilkynningu vegna umræddra aðgerða og stöðu þess í tengslum við uppgjör á verðbréfum sem voru í viðskiptum í Kauphöllinni.
Tilkynning félagsins var birt 18. júní sl. og kom þar fram að á grundvelli samkomulags við eigendur markaðsbréfa félagsins sem voru á gjalddaga í mars og apríl hefðu átt sér stað viðræður um uppgjör krafnanna og af hálfu félagsins væri að því stefnt að niðurstaða myndi nást innan fárra vikna. Enn fremur væri stefnt að samkomulagi við eigendur þriggja annarra markaðsflokka sem væru í viðskiptum í Kauphöllinni.
Skuldabréfaflokkur Nýsis hf. NYSI 03 1 féll í gjalddaga 17. júlí sl. Óskaði Kauphöllin á ný eftir tilkynningu frá félaginu þar sem fyrri tilkynning var ekki talin fullnægja upplýsingaskyldu útgefanda að því leyti að ekki hefði verið upplýst um að dráttur yrði á afborgunum á þeim flokkum verðbréfa sem voru í viðskiptum í Kauphöllinni.
Félagið birti opinberlega tilkynningu 22. júlí sl. þar sem meðal annars kom fram að full endurskipulagning félagsins myndi taka lengri tíma og dráttur yrði á greiðslum þangað til þeirri endurskipulagningu yrði lokið.
Samkvæmt ákvæði 4.2.1 í reglum fyrir útgefendur fjármálagerninga í Kauphöllinni skal útgefandi kappkosta að birta án tafar allar áður óbirtar upplýsingar um ákvarðanir eða atvik sem hann vissi eða mátti vita að hefðu marktæk áhrif á markaðsverð skuldabréfa hans.
Í ákvæði 4.2.2 (4.2.3) kemur fram að tilkynna skuli um allar ákvarðanir eða atvik sem varða réttindi eigenda skuldabréfa. Í skýringum með ákvæðinu segir að meðal annars sé um að ræða atriði eins og drátt á afborgunum höfuðstóls og/eða vaxta. Í ákvæði 4.1.3 í reglunum segir að útgefandi skuli gæta jafnræðis fjárfesta um aðgang að upplýsingum sem reglurnar taki til og meðhöndla og varðveita með þeim hætti að óviðkomandi hafi ekki aðgang að slíkum upplýsingum áður en þær eru gerðar opinberar.
Allar upplýsingar sem reglurnar taka til skal birta án tafar eða eins fljótt og unnt er, sbr. ákvæði 4.1.4, að því er segir í tilkynningu á vef Kauphallarinnar.
„Upplýsingar um fjárhagsstöðu útgefanda og greiðsluörðugleika eru upplýsingar sem útgefandi mátti vita að hefðu marktæk áhrif á markaðsverð verðbréfa hans, sbr. ákvæði 4.2.1 í reglum Kauphallarinnar. Þegar ljóst er að útgefandi verðbréfa getur ekki staðið við skuldbindingar sínar samkvæmt skilmálum verðbréfa sem eru til viðskipta í Kauphöll, s.s. greiðslu á afborgunum höfuðstóls og/eða vaxta þá er brýnt að fjárfestar séu upplýstir um það, sbr. ákvæði 4.2.2 (4.2.3) í reglum Kauphallarinnar.
Þær almennu upplýsingar sem fram komu í tilkynningu með ársuppgjöri félagsins um fjárhagslega endurskipulagningu félagsins sem birt var 2. apríl sl. eru ekki fullnægjandi þar sem ekki var upplýst um að dráttur yrði á greiðslum af verðbréfum útgefnum af félaginu.
Gera verður þá kröfu til útgefanda verðbréfa að upplýsingagjöf um atriði sem kunna að hafa verðmótandi þýðingu sé viðhaldið og þær tilkynningar sem birtar hafa verið séu uppfærðar í samræmi við nýjar upplýsingar sem koma fram. Ekki er einungis mikilvægt að gæta að hagsmunum eigenda útgefinna verðbréfa heldur verður að huga að því að þegar verðbréf hafa verið tekin til viðskipta í kauphöll er auðvelt að koma þeim í verð.
Það er því nauðsynlegt að hugsanlegir fjárfestar séu upplýstir um fjárhagsstöðu útgefanda og greiðsluhæfi. Það leysir útgefanda ekki undan upplýsingaskyldu sinni að upplýsa einungis eigendur útgefinna verðbréfa um fjárhagsörðugleika og vanskil á greiðslum.
Með slíkri valkvæðri upplýsingagjöf til afmarkaðs hóps fjárfesta er verið að brjóta gegn jafnræði aðila á markaði um aðgang að upplýsingum sem kunna að hafa marktæk áhrif á markaðsverð verðbréfa útgefanda, sbr. ákvæði 4.1.3.
Útgefandi verðbréfa ber ábyrgð á því að upplýsingar sem geta talist hafa marktæk áhrif á markaðsverð verðbréfa hans séu birtar í samræmi við ákvæði reglna Kauphallarinnar og að slíkar upplýsingar komi ekki fram í fjölmiðlum áður en þær eru gerðar opinberar með fullnægjandi hætti í samræmi við fyrrgreind ákvæði.
Samkvæmt ofangreindum ákvæðum er útgefanda skylt að birta slíkar upplýsingar án tafar eða eins fljótt og unnt er. Ef birting upplýsinga er dregin á langinn er hætt við að þær berist út með ófullnægjandi hætti og jafnræði fjárfesta um aðgang að upplýsingunum sé stofnað í hættu, sbr. ákvæði 4.1.3," að því er segir í tilkynningu Kauphallarinnar.