Alþjóðalega matsfyrirtækið Moody's Investors Service hefur staðfest lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs Íslands í reglubundnu mati sínu. Staðfestar voru einkunnirnar Aa1 fyrir langtímaskuldbindingar í erlendri mynt og íslenskum krónum og P-1 fyrir skammtímaskuldbindingar í erlendri mynt og íslenskum krónum. Horfur eru stöðugar.