Bush: Ábyrg og nauðsynleg inngrip

Forseti Bandaríkjanna, George W. Bush, segir að aukin inngrip stjórnvalda á fjármálamarkaði  séu ábyrg og nauðsynleg til þess að stöðva verstu fjármálakreppuna sem landið hafi glímt við í áratugi. Það hefði verið mun hættulegra að bregðast ekki við.

„Bandarískt efnahagslíf er að takast á við fordæmalausar áskoranir. Við tökumst á við þær með fordæmalausum aðgerðum," sagði Bush á fundi með fjölmiðlum ásamt fjármálaráðherra Bandaríkjanna, Henry Paulson, formanni bankastjórnar Seðlabanka Bandaríkjanna, Ben Bernanke og Christopher Cox, stjórnarformanni Fjármálaeftirlits Bandaríkjanna, Securities and Exchange Commission.

„Nú er tímabært  að leysa vandann," sagði Bush við fréttamenn í Rósagarðinum við Hvíta húsið í Washington í dag.

Forseti Bandaríkjanna, George W. Bush
Forseti Bandaríkjanna, George W. Bush Reuters
George W. Bush, Ben Bernanke, Henry Paulson og Christopher Cox …
George W. Bush, Ben Bernanke, Henry Paulson og Christopher Cox ræða við fjölmiðla í dag. Reuters
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK