Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 2,76% það sem af er degi og er þetta mesta hækkunin af norrænu kauphöllunum. Exista hefur hækkað um 8,66%, Atlantic Petroleum hefur hækkað um 8,28% og Kaupþing um 2,94%. Eina félagið sem hefur lækkað í dag er Icelandair og nemur lækkunin 0,24%.
Í Ósló hefur hlutabréfavísitalan hækkað um 0,39% og Nordic 40 hefur hækkað um 0,74%. Annars staðar er um lækkun að ræða. Kaupmannahöfn hefur lækkað um 0,23%, Stokkhólmur um 0,38% og Helsinki 1,76%.