Gengi íslensku krónunnar hefur haldið áfram að lækka í morgun. Hefur gengisvísitala krónunnar hækkað um 2,1% og er 179,8 stig, fór raunar í 180,5 stig í morgun og er það í fyrsta skipti sem vísitalan fer yfir 180 stig.
Gengi Bandaríkjadals var nú klukkan 10 93,45 krónur, pundsins 179,16 krónur og evrunnar 138,25 krónur.