Geir H. Haarde, forsætisráðherra mun loka Nasdaq hlutabréfamarkaðnum í dag, miðvikudag 24. september við athöfn í tilefni af fundi Sameinuðu þjóðanna í New York.
Atburðurinn fer fram við Nasdaq MarketSite á Times Square í New York. Athöfnin verður á milli kl. 19.45-20.00 að íslenskum tíma, eða 3.45-4.00 á staðartíma í New York.
Hægt er að fylgjast með atburðinum í gegnum netvarp hér