Stjórn Byrs sparisjóðs ákvað í morgun að hætta sameiningarviðræðum við Glitni banka hf. en viðræðurnar sem hófust laugardaginn 20. september síðastliðinn voru ennþá á frumstigi. Varðandi ástæður þess að viðræðum var hætt vísast til fréttatilkynningar Glitnis banka hf. fyrr í dag, að því er segir í tilkynningu frá sparisjóðnum.
„Staða Byrs sparisjóðs er sem fyrr sterk. Áhersla verður lögð á að viðhalda núverandi styrk sparisjóðsins," samkvæmt tilkynningu.