Matsfyrirtækið Fitch Ratings greindi frá því í dag að það hefði lækkað lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs Íslands fyrir langtímaskuldbindingar í erlendri og innlendri mynt í A- og AA úr A+ og AA+.
Lánshæfiseinkunnin fyrir skammtímaskuldbindingar í erlendri mynt er lækkuð í F2 úr F1 og landseinkunnin lækkuð í A úr AA-. Auk þess hefur Fitch sett lánshæfiseinkunnirnar á neikvæðar horfur.