Sala Ford Motor dróst saman um 34% í Bandaríkjunum í september. Mestur er samdrátturinn í stórum bifreiðum en heldur minni í smærri bifreiðum. Vonast Ford til þess að salan aukist í október þegar nýtt eintak af F-150 pallbílum fer á markað en hann hefur verið mest seldi jeppinn í Bandaríkjunum í 31 ár.
Samdráttur Toyota 29,5%
Sala Toyota Motor dróst saman um 29,5% í Bandaríkjunum í september og er samdrátturinn mestur í jeppum og sportbifreiðum. Er það talist skýrast af háu eldsneytisverði.