Írska þingið samþykkti í dag neyðarlög sem gerða ráð fyrir því að írska ríkið ábyrgist bæði innistæður í írskum bönkum og skuldbindingar þeirra. Þessar aðgerðir hafa sætt mikilli gagnrýni í nágrannalöndum, einkum Bretlandi, þar sem írsku bankarnir eru með útibú og eru nú í kjörstöðu í samkeppni um viðskiptavini við breska banka.
Þingið sat á fundi í alla nótt og hefur ekki verið haldinn jafn langur fundur þar í þrjá áratugi. Í morgun samþykkti neðri deild þingsins frumvarpið með 124 atkvæðum gegn 18. Öldungadeildin samþykkti frumvarpið síðan með 39 atkvæðum gegn 5.
Tryggingin, sem írska ríkið veitir, er metin á um 400 milljarða evra og nær yfir skuldbindinga Allied Irish Bank, Bank of Ireland, Anglo Irish Bank,
Irish Life and Permanent, Irish Nationwide Building Society og
Educational Building Society.