Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 26. september til og með 2. október 2008 var 81. Þar af voru 70 samningar um eignir í fjölbýli, 9 samningar um sérbýli og 2 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 2.154 milljónir króna og meðalupphæð á samning 26,6 milljónir króna. Að meðaltali var 75 kaupsamningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu sl. tólf vikur.
Á sama tíma var 7 kaupsamningum þinglýst á Akureyri. Þar af voru 5 samningar um eignir í fjölbýli og 2 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 120 milljónir króna og meðalupphæð á samning 17,2 milljónir króna.
Á sama tíma var 15 kaupsamningum þinglýst á Árborgarsvæðinu. Þar af voru 2
samningar um eignir í fjölbýli og 13 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 326
milljónir króna og meðalupphæð á samning 21,7 milljónir króna, samkvæmt upplýsingum frá Fasteignamati ríkisins.