Enn er ekki fyrirséð hver verðbólgan á þessu ári verður en gengislækkun undanfarinna daga mun enn auka á þá 14% verðbólgu sem nú er. Því mun bæta í verðbólguna á 4. ársfjórðungi. Eigi heildarskatttekjur ríkissjóðs að halda raungildi sínu er því ljóst að hækkun þessara skatttegunda muni enn auka á verðbólguna, samkvæmt upplýsingum frá greiningu Glitnis.
Í nýju frumvarpi er gert ráð fyrir að ýmsir tekju- og gjaldaliðir í rekstri ríkissjóðs taki verðuppfærslu á næstu árum. Til að mynda er gert ráð fyrir að persónuafsláttur muni hækka um 7 þúsund krónur á árunum 2009-2011 umfram verðuppfærslu.
Þetta þýðir í raun að í fjárlagafrumvarpinu er gert ráð fyrir að persónuafsláttur muni hækka um sem nemur verðbólgu á komandi árum og um sem 7 þúsund krónum umfram það, að því er segir í Morgunkorni greiningar Glitnis.
„Eflaust munu flestir fagna þessum þætti frumvarpsins. En verðlagsuppfærsla er nefnd víðar og ólíklegt er að hún veki eins mikla gleði þegar kemur að verðuppfærslu ýmissa gjalda. Í frumvarpinu er til að mynda gert ráð fyrir að krónutöluskattur á áfengi og tóbak muni taka verðuppfærslu. Jafnframt er fyrirhugað að breyta fyrirkomulagi á gjöldum á ökutækjum og eldsneyti þannig að heildarskatttekjur af eldsneyti og ökutækjum haldi raungildi sínu," að því er segir í Morgunkorni Glitnis.
Gróft mat á áhrifum þessarar
skattahækkunar á verðbólgu, verði hún samþykkt, er að vísitala
neysluverðs muni hækka um á bilinu 0,6%-1% og jafnvel meira í upphafi
næsta árs, samkvæmt upplýsingum frá greiningu Glitnis.