Einn af stærstu bönkum Þýskalands á í verulegum erfiðleikum eftir að áætlun um að bjarga honum frá þroti, fór út um þúfur. Um er að ræða bankann Hypo Real Estate, sem er annar umsvifamesti banki landsins á sviði fasteignaveðlána.
Hypo Real Estate, sem er með mikið af svonefndum undirmálslánum, hefur orðið fyrir barðinu á lausafjárskortinum sem verið hefur á alþjóðlegum fjármagnsmarkaði.
Þýsk stjórnvöld áttu í viðræðum við hóp fjármálastofnana um að koma Hypo Real Estate til bjargar en bankahópurinn hefur nú dregið sig út úr viðræðunum þegar í ljós kom að til var ætlast að hann legði fram 35 milljarða evra, jafnvirði rúmlega 5400 milljarða króna.
Sumir sérfræðingar segja, að Hypo Real Estate muni ekki geta starfað nema í nokkra daga án þess að fá neyðaraðstoð og því verði að grípa til aðgerða áður en fjármálamarkaðir verða opnaðir í fyrramálið.
Leiðtogar Frakklands, Þýskalands, Bretlands og Ítalíu áttu viðræður í gær um ástandið á fjármálamörkuðum. Þar var niðurstaðan sú, að ekki yrði komið á fót neyðarsjóði að bandarískri fyrirmynd heldur myndu Evrópusambandsríkin vinna náið saman.