Ekki samið við lífeyrissjóði í dag

Hrafn Magnússon, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóðanna.
Hrafn Magnússon, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóðanna.

Hrafn Magnússon, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða segist telja alveg ljóst að ekki verði gengið frá samkomulagi við lífeyrissjóðina í dag um að sjóðirnir flytji heim hluta eigna sinna í útlöndum. Enn sé beðið eftir niðurstöðu úr viðræðum stjórnvalda og bankanna.

Hrafn segir, að aldrei hafi staðið til að ganga frá samningum við lífeyrissjóðina nema að það yrði hluti af víðtækari aðgerðum en enn liggi engin svör fyrir frá bönkunum um hlutdeild þeirra. 

Forsvarsmenn lífeyrissjóðanna áttu fund með fulltrúum fjármálaráðuneytisins, Seðlabankanum og fjármálaeftirlitsins fyrir hádegi. Farið var yfir aðgerðaáætlun lífeyrissjóðanna.

Stjórnendur lífeyrissjóðanna hafa lýst sig tilbúna að flytja um 200 milljarða af eignum sjóðanna erldis til landsins til að styrkja gjaldeyrisforða að ákveðnum skilyrðum uppfylltum, m.a. að bankarnir selji eitthvað af eignum sínum í útlöndum

Lífeyrissjóðrirnir eru því í biðstöðu á meðan beðið er eftir niðurstöðu úr viðræðum stjórnvalda við bankana.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK