Gengi íslensku krónunnar veiktist um 11,65% í dag. Gengisvísitalan stóð í 206 stigum við upphaf viðskipta en er nú 230 stig. Ekki hefur fengist uppgefið hversu mikil veltan var á millibankamarkaði annað en hún hafi verið lítil. Bandaríkjadalur er 127,45 krónur, pundið er 221,9 krónur og evran 172,25 krónur.