Fjármálaeftirlitið hefur sektað Kaupþing um þrjár milljónir króna fyrir að hafa dregið í tvo daga að tilkynna um sölu á 3,1% hlut í Mosaic Fashions þann 14. ágúst 2007. Fór salan fram þann 10. ágúst 2007, tveimur viðskiptadögum áður en flöggunartilkynning barst.