Ekki er hægt að komast inn á vef Seðlabanka Íslands og því erfitt að nálgast upplýsingar um opinbert gengi gjaldmiðla gagnvart íslensku krónunni. Samkvæmt vef Glitnis er gengi Bandaríkjadals um 111 krónur, pundið um 193 krónur, evran um 150 krónur og danska krónan um 20 krónur.