Birt hefur verið nýtt skipurit Landsbankans á vef bankans. Samkvæmt því er Brynjólfur Helgason yfirmaður innri endurskoðunar bankans og heyrir beint undir stjórn hans.
Áður hafði verið tilkynnt að Elín Sigfúsdóttir væri bankastjóri og Þórir Örn Ingólfsson stýrði áhættustýringarsviði. Framkvæmdastjórar eru: Anna Bjarney Sigurðardóttir á útibúasviði, Árni
Þór Þorbjörnsson á fyrirtækjasviði, Jón Þorsteinn Oddleifsson á
fjármálasviði, Stefán Héðinn Stefánssson á
eignastýringarsviði,Guðmundur Guðmundsson á rekstrarsviði, Gunnar Viðar
á lögfræðisviði og Atli Atlason á starfsmannasviði.