Glitnir Finnlandi, dótturfélag í 100% eigu Glitnis banka hf., hefur verið selt stjórnendum félagsins þar í landi. Þetta er niðurstaða viðræðna sem átt hafa sér stað milli aðila með aðkomu og samþykki finnska fjármálaeftirlitsins. Kaupverðið er trúnaðarmál. Búist er við því að finnska félagið muni í framhaldinu taka aftur upp nafnið FIM en svo hét það fyrir yfirtöku Glitnis á seinasta ári.