SPRON segir, að eftir yfirtöku Fjármálaeftirlitsins á Kaupþingi sé ljóst að forsendur fyrir sameiningu Kaupþings og SPRON séu brostnar og verði því ekki um samruna að ræða. Eins sé ljóst, að gjörbreyttar aðstæður á fjármálamörkuðum hafi neikvæð áhrif á afkomu SPRON. Unnið sé að því að endurskipuleggja og efla rekstur SPRON.
Unnið er að því að endurskipuleggja og efla rekstur SPRON með tilliti til langtímahagsmuna félagsins og gjörbreyttu umhverfi fjármálafyrirtækja, að því er segir í tilkynningu frá SPRON.
„Starfsemi SPRON verður óbreytt og munu starfsmenn fyrirtækisins kappkosta að þjónusta viðskiptavini sína eftir bestu getu miðað við þær aðstæður sem nú eru uppi á fjármálamörkuðum. Ríkisstjórnin hefur áréttað að innstæður í innlendum viðskiptabönkum, sparisjóðum og útibúum þeirra hér á landi eru tryggðar að fullu.
Með innstæðum er átt við allar innstæður almennra sparifjáreigenda og fyrirtækja sem trygging innstæðudeildar Tryggingasjóðs innstæðueigenda tekur til," samkvæmt tilkynningu.