Bakkavör Group hefur tilkynnt að matvælaverksmiðju fyrirtækisins í Grimsby á Englandi verði lokað. Haft er eftir ónafngreindum talsmanni Bakkavarar á fréttavefnum Wigantoday, að samdráttur í eftirspurn og verðbólgu sé um að kenna.
Yfir 500 manns munu missa vinnuna þegar verksmiðjunni verður lokað en þar eru framleiddir tilbúnir réttir.
Fram kemur að fyrirtækið segi að lokun verksmiðjunnar tengist ekki bankakreppunni á Íslandi.