Nýr Glitnir stofnaður

Birna Einarsdóttir er bankastjóri Nýja Glitnis.
Birna Einarsdóttir er bankastjóri Nýja Glitnis.

Nýr Glitn­ir banki hf. hef­ur verið stofnaður um inn­lenda banka­starf­semi Glitn­is banka hf. Nýi  bank­inn tek­ur yfir inn­lend­ar eign­ir Glitn­is til þess að tryggja eðli­lega banka­starf­semi og ör­yggi inn­stæðna á Íslandi. Alþjóðleg starf­semi Glitn­is er skil­in frá. Öll úti­bú, þjón­ustu­ver, hraðbank­ar og net­banki Glitn­is verða opin. 

Í til­kynn­ingu frá Fjár­mála­eft­ir­lit­inu seg­ir, að með því að taka ákvörðun um  að flytja hluta af starf­semi Glitn­is banka hf. til nýs banka, sem sé að fullu í eigu ís­lenska rík­is­ins sé tryggð áfram­hald­andi banka­starf­semi fyr­ir heim­il­in og fyr­ir­tæk­in í land­inu. 

Í ákvörðun­inni felst m.a. að nýi bank­inn yf­ir­tek­ur all­ar inn­stæðuskuld­bind­ing­ar í bank­an­um á Íslandi og sömu­leiðis stærst­an hluta eigna bank­ans sem tengj­ast ís­lenskri starf­semi s.s. lán og aðrar kröf­ur.

Á næstu 30 dög­um mun fara fram mat óháðs aðila á verðgildi eigna og skulda og lo­ka­upp­gjör.  Eigið fé nýja bank­ans verður 110 millj­arðar króna sem ríkið legg­ur fram.  Stærð efna­hags­reikn­ings hins nýja banka verður um 1200 millj­arðar króna.

Birna Ein­ars­dótt­ir hef­ur verið ráðin banka­stjóri.  Lyk­il­stjórn­end­ur hins nýja banka munu sjá um kynn­ingu á starf­semi hans en heiti hans verður Nýi Glitn­ir banki hf.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK