Greiðslur stöðvaðar á leið til Íslands

Vegna þeirra sérstöku aðstæðna sem eru í bankastarfsemi þessa dagana hefur Seðlabanki Íslands ástæðu til að ætla að greiðslur sem eiga að koma frá erlendum aðilum til íslenskra banka séu stöðvaðar á leiðinni.

Ef erlendir aðilar telja að óvissa ríki um að greiðslur skili sér til réttra aðila, eða óttast að þeir skapi sér ábyrgð vegna þess að greiðslur skili sér ekki, hefur Seðlabanka Íslands lýst því yfir við erlendar lánastofnanir að hann tryggi að allar greiðslur sem bankar sendi um reikninga Seðlabankans á reikninga innlendra lánastofnana muni skila sér til eigenda reikninga í við komandi lánastofnunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Loka