Hagnaður bandaríska álfélagsins Century Aluminium, móðurfélags Norðuráls, nam 37 milljónum dala, jafnvirði 4,2 milljarða króna, á þriðja ársfjórðungi, samanborið við 7 milljóna dala hagnað á sama tíma í fyrra. Í tilkynningu félagsins kemur fram, að verið sé að yfirfara áætlanir við nýtt álver í Helguvík.
„Við erum að leggja víðtækt mat á stöðu Helguvíkurverkefnisins," segir Logan Kruger, forstjóri Century, í tilkynningu frá félaginu. „Við erum viss um að álverið verður á heimsmælikvarða þegar litið er til byggingarkostnaðar og umhverfisþátta. Þá munu efnahagsumsvifin, sem fylgja verkefninu styrkja Ísland á þessum umbrotatímum. Eins og umhverfið er gerum við ekki nýja samninga og aukum ekki kostnað í verkefninu. Við teljum að það sé möguleiki á skynsamlegum framgangi með tímanum en við munum á yfirvegaðan hátt meta hagkvæmni allra þátta verkefnisins á næstunni."
Þegar undan voru skilin óreglulegar tekjur og útgjöld var hagnaður á ársfjórðungnum 1,31 dalur á hlut en sérfræðingar höfðu spáð 1,49 dölum á hlut.
Tekjur jukust um 22% milli ára og voru 552,2 milljónir dala. Er tekjuaukningin m.a. rakin til framleiðsluaukningar í álverinu á Grundartanga.
Gengi hlutabréfa Century, sem náði hámarki í maí og var þá 80,52 dalir á Nasdaqmarkaðnum á Wall Street, lækkaði um 8,5% í dag og er 13,93 dalir. Bréfin lækkuðu um 2% til viðbótar í viðskiptum eftir að markaðnum var lokað og ársfjórðungsuppgjörið var birt og er gengið 13,61 dalur.