Eimskipafélag Íslands hefur samið við skuldabréfaeigendur í flokkum HFEIM 071 og HFEIM 072. Fram kemur í tilkynningu frá félaginu að það hafi þegar fengið undirritað samþykki 95% skuldabréfaeigenda og áfram sé unnið að því að ná sama samkomulagi við þann hluta eigenda skuldabréfa sem hafi ekki gengið frá samningi við félagið.
„Eins og áður hefur komið fram vinnur félagið að sölu eigna og því mikilvægt að skapa frið um félagið á meðan söluferli er í gangi. Stjórnendur félagsins vinna nú að endurskipulagningu ásamt endurfjármögnun félagsins og er stuðningur skuldabréfaeigenda því mikilvægt skref í þeirri vinnu. Með því að veita Eimskip þetta svigrúm er verið að vernda eignir þess og þar með að takmarka áhættu kröfuhafa.
Flutningastarfsemi Eimskips er í góðum rekstri, dagleg starfsemi og þjónusta við viðskiptavini er sem áður tryggð. Söluferli eigna gengur samkvæmt áætlun sem mun styrkja verulega fjárhagsstöðu félagsins," segir Gylfi Sigfússon forstjóri Eimskipafélags Íslands, í tilkynningu.
Þá segir í tilkynningu að í ofangreindum flokkum skuldabréfa hafi Eimskip skuldbundið sig við útgáfu þeirra til að tryggja að bókfært eigið fé væri ekki lægra en 25% frá og með árshlutauppgjöri fyrsta ársfjórðungs 2008.
Ljóst sé að Eimskip geti ekki tryggt þau viðmið og því hafi verið samið við 95% eigenda ofangreindra skuldabréfaflokka að þeir falli frá rétti sínum til að gjaldfella kröfu sína á hendur félaginu þrátt fyrir að eiginfjárhlutfallið sé eða verði lægra en 25% fram að gjalddaga.
Eimskip hafi nú heimild til að fresta gjalddögum skuldabréfanna þar til 30 dögum eftir sölu á frystigeymslustarfsemi félagsins í Norður Ameríku, en þó eigi síðar en 30. júní 2009.
Þá verði öllum vaxtagreiðslum frestað til gjalddaga og gjaldfallnir vextir bætast við höfuðstól. Skuldabréfaflokkur HFEIM 071 er 1.500 mkr. að nafnvirði og skuldabréfaflokkur HFEIM 072 er 8.000 mkr. að nafnvirði.