ESB hefur ekkert um það að segja hvernig Íslendingar haga veiðum á deilistofnum innan landhelgi sinnar, að því er Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍU, segir á vefsíðu samtakanna. Samtök fiskframleiðenda í Danmörku hafa farið þess á leit við ESB að það beiti sér gegn makrílveiðum Íslendinga.
„Ég átta mig ekki alveg á því af hverju Danirnir eru að biðja Evrópusambandið um að hlutast til um hvernig við högum veiðum á deilistofnum innan okkar landhelgi. ESB hefur ekkert um það segja þannig að þetta fellur um sjálft sig,“ er haft eftir Friðrik á vefsíðu LÍÚ.
Greint er frá því á vefsíðunni skip.is að samtök framleiðenda uppsjávarfisks í Danmörku (PO) hafi farið þess á leit við Joe Borg, fiskimálastjóra Evrópusambandsins að hann beiti sér gegn makrílveiðum Íslendinga og grípi inn í þær. Vísað er í Christian Olsen talsmann samtakanna sem segir í samtali við sjávarútvegsblaðið Fiskeri Tidende að veiðar Íslendinga séu algjörlega óásættanlegar.
Á vefsíðu LÍÚ segir að makríll hafi í stórvaxandi mæli leitað til Íslands á síðustu tveimur árum samfara hlýnun sjávar og sé afli Íslendinga orðinn 112.000 tonn á þessu ári, sem nær allur hafi fengist innan íslenskrar lögsögu. Heildarafli makríls í Norðaustur-Atlantshafi sé áætlaður um 600.000 tonn á yfirstandandi ári sem þýðir að hlutur Íslands er í kringum 20%.