Skuldir heimilanna 1.030 milljarðar króna

Skuldir heimila við innlánsstofnanir jukust um 23% frá áramótum til septemberloka, að mestu leyti vegna beinna og óbeinna áhrifa af gengisfalli krónunnar. Alls voru skuldir heimilanna við banka og sparisjóði tæplega 1.030 milljarðar króna í lok september samkvæmt nýlega birtum tölum Seðlabankans fyrir bankakerfið.

Þar af voru tæplega 277 milljarðar króna í formi gengisbundinna lána og verðtryggð lán námu rúmum 625 milljörðum króna.  Athygli vekur að á þriðja fjórðungi ársins hækkuðu skuldir heimila við innlánastofnanir um 8,4%, en á því tímabili var lítið um ný útlán til heimila og má gera ráð fyrir að þessi aukning sé að langstærstum hluta vegna áhrifa af gengisfalli krónu á höfuðstól gengistryggðra lána annars vegar, og verðbótaþáttar verðtryggðra lána hinsvegar, að því er segir í Morgunkorni Glitnis.

„Aukin greiðslubyrði af skuldum er heimilunum verulegur fjötur um fót um þessar mundir, auk þess sem hækkandi höfuðstóll gengis- og verðtryggðra lána hefur rýrt eiginfjárstöðu margra verulega. Um mitt ár voru heildarskuldir íslenskra heimila við lánakerfið í heild, þ.e. alla lánveitendur í einkageira sem hinum opinbera, 1.760 ma.kr. Um það bil þrír fjórðuhlutar þessara skulda voru verðtryggðir og í kring um 15% voru í formi gengistryggðra lána. Síðan þá hefur vísitala neysluverðs hækkað um tæplega 6% og gengi erlendra gjaldmiðla gagnvart krónu hækkað um rúm 37%, ef miðað er við gengisvísitölu.

Hækkun vísitölu neysluverðs á þessum tíma er að stærstum hluta til komin vegna gengislækkunar krónu. Ef aðeins er miðað við skuldastöðuna eins og hún var um mitt ár til einföldunar hafa ofantaldar breytingar haft þau áhrif að höfuðstóll verðtryggðra lána heimilanna hefur hækkað um 75 - 80 ma.kr. og höfuðstól gengisbundinna lána um allt að 75 mö.kr., þótt erfitt sé að áætla breytingar gengisbundinna lána vegna óvissu um myntsamsetningu þeirra.

Eiginfjárstaða heimilanna hefur þá rýrnað sem þessu nemur, og hætt er við að enn syrti þar í álinn þar sem talsverður hluti af undanfarinni gengislækkun krónu á enn eftir að koma fram í neysluverðlagi og útlit er fyrir verðlækkun á íbúðarhúsnæði á næstunni," að því er segir í Morgunkorni Glitnis.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK