Samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands fyrir október 2008 nam útflutningur fob 47 milljörðum króna og innflutningur fob 36,4 milljörðum króna. Vöruskiptin í október, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 10,6 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum. Fobverð er verð vörunnar komið um borð í flutningsfar í útflutningslandi.
Vísbendingar eru um aukið verðmæti útfluttra sjávarafurða og
iðnaðarvara en minni útflutning flugvéla og innflutningur flestra liða
er minni í október miðað við september 2008.
Athygli skal vakin á því að samkvæmt alþjóðlegum stöðlum er verðmæti inn- og útflutnings mælt þegar vörur fara yfir landamæri óháð því hvenær gjaldeyrisskil vegna þeirra fara fram, en verulegar tafir hafa orðið á þeim í október eins og kunnugt er, að því er segir á vef Hagstofu Íslands.