Hjá SPRON er verið að fara yfir lánasamninga viðskiptavina sparisjóðsins og meðal annars breyta lánum í erlendri mynd yfir í lán í íslenskar krónur, að sögn Guðmundar Haukssonar forstjóra. Þá segir hann að verið sé að lengja í lánum sumra viðskiptavina.
„Öll fjármálafyrirtæki eru að mæta þeirri stöðu sem er á markaðinum í dag, þar sem ekkert fyrirtæki hefur aðgang að erlendu lánsfé,“ segir Guðmundur. „Þess vegna erum við eins og aðrar lánastofnanir að fara ofan í saumana á lánasamningum viðskiptavina okkar.“