VR hefur boðað til almenns félagsfundar á Grand hóteli á fimmtudaginn klukkan 19:30. Á fundinum mun Gunnar Páll Pálsson, formaður VR, gera grein fyrir störfum sínum í stjórn Kaupþings og í kjölfarið verður opnað fyrir umræður. Félagsmenn eru hvattir til að mæta, að því er segir á vef VR.
Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum ákvað stjórn Kaupþings að fella niður persónulegar ábyrgðir starfsmanna bankans
vegna lána sem tekin voru vegna kaupréttarsamninga.