Makaskipti geta haft áhrif á verðmyndun

mbl.is

Búast má við því að makaskiptasamningum í fasteignakaupum muni enn fjölga á næstu mánuðum enda er það oft eina leiðin sem fær er til að skipta um húsnæði eða minnka við sig á tímum lausafjárþurrðar og kreppu. Getur þetta haft töluverð áhrif á verðmyndun á fasteignamarkaði, en við makaskipti er oft hagur beggja að skrá verð eignar sinnar hærra en ella væri. Þetta kemur fram í Morgunkorni Glitnis.

„Verðmunurinn milli viðeigandi eigna er í raun það sem skiptir mestu máli fyrir þá sem í viðskiptunum eiga frekar en verð hvorrar eignar fyrir sig. Hins vegar getur það auðveldað lánsfjármögnun að verðið sé tiltölulega hátt, þar sem flestar lánastofnanir hafa tiltekin hlutfallsmörk á lánsupphæð miðað við verð eignar," að því er segir í Morgunkorni.

 Í október voru gerðir 50 makaskiptasamningar í fasteignaviðskiptum, sem nemur því að 17% fasteignaviðskipta þann mánuðinn hafi farið fram með skiptum á fasteignum að einhverjum hluta. Til samanburðar var þetta hlutfall 3,5% í október 2006 og 2% í október 2007.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK