Bandarísk hlutabréf hækkuðu öllum að óvörum í kauphöllinni á Wall Street í kvöld. Dow Jones hlutabréfavísitalan hækkaði um 6,67% og er 8835 stig. Nasdaq vísitalan hækkaði um 6,5% og er 1596 stig og S&P vísitalan hækkaði um 6,9%. Gengi bréfa deCODE lækkaði hins vegar um 11,6% og er 30 sent.