Danski bankinn Ebh Bank hefur lýst því yfir, að lausafjárstaða hans sé komin niður fyrir áskilin mörk. Hefur bankinn því leitað til danska fjármálaeftirlitsins og óskað eftir að það grípi inn í reksturinn.
Stjórn og framkvæmdastjórn Ebh hafa nú farið yfir útlán og tryggingar bankans eftir ársfjórðungsuppgjör, sem birt var í októberlok, og segir að þörf sé á frekari afskriftum. Það þýði, að lausafjárhlutfall bankans sé komið langt undir þau mörk, sem áskilið er í lögum.
Í tilkynningu frá bankanum segir að afskriftirnar tengist aðallega fasteignafélögum. Bankinn tapaði m.a. miklu fé þegar fasteignafélögin
Midtcom og Midtcom Erhverv í Vejle urðu gjaldþrota fyrr á þessu ári.