Milestone, fjárfestingafélag Karls og Steingríms Wernerssona, á í viðræðum við stærsta lánveitanda sinn Nýja Glitnir um fjárhagslega endurskipulagningu á félaginu. Tillögur Milestone miða að því að vernda verðmæti eigna félagsins þannig að hagmunir allra lándrottna þess verði sem best tryggðir, að því er segir í tilkynningu frá Milestone.
„Fall bankakerfisins á Íslandi svo og erfiðleikar á fjármálamörkuðum í heiminum hafa haft umtalsverð áhrif á efnahag Milestone eins og annarra fyrirtækja á Íslandi. Vegna veikingar krónunnar hafa skuldir félagsins aukist umtalsvert og verðlækkun eigna á Íslandi og um allan heim hafa leitt til lækkunar á virði eigna félagsins," að því er segir í tilkynningu til Kauphallar Íslands.