Margir fjárfestar horfa nú til gulls þegar verð bæði hlutabréfa og olíu hefur hrunið. Þótt gullverð hafi lækkað um rúmlega 1% í gær, aðallega vegna þess að gengi Bandaríkjadals hækkaði, er búist við verðhækkun á næstunni þar sem jólin nálgast og einnig hefðbundin brúðkaupatíð á Indlandi.