Gengi á hlutabréfum deCODE, móðurfélags Íslenskrar erfðagreiningar, lækkaði í dag um 37% á bandaríska Nasdaq verðbréfamarkaðnum og er 17 sent. Hefur gengi bréfanna aldrei verið lægra frá því þau voru skráð á Nasdaq markaðinn árið 2000. Um tíma í dag fór gengið niður í 15 sent.
Markaðsvirði deCODE er nú aðeins 10,5 milljónir dala, jafnvirði 1,48 milljarða króna. Nasdaq setti hlutabréf deCODE á athugunarlista í byrjun október vegna þess að markaðsvirði félagsins hafði þá verið undir 50 milljónum dala 10 viðskiptadaga í röð en það markaðsvirði er lágmark, sem Nasdaq setur fyrir skráningu á svonefndan Global Market.
Útboðsgengi deCODE var 18 dalir á hlut í hlutafjárútboði sem fór fram árið 2000 áður en bréfin voru skráð á Nasdaq. Fyrsta viðskiptadaginn á Nasdaq fór gengið upp í 31,5
dal á hlut en fór ört lækkandi eftir það. Áður hafði gengi bréfa í
deCODE á gráa markaðinum hér heima farið yfir 60 dali.