Leiðtogar aðildarríkja APEC, fríverslunarbandalags Asíu- og Kyrrahafsríkja, segja í lokayfirlýsingu fundar þeirra um helgina, að þeir séu þess fullvissir, að hægt verði að vinna á fjármálakreppunni á 18 mánuðum. Heita þeir hröðum og ákveðnum aðgerðum til að þetta geti orðið.
Í yfirlýsingunni segja þjóðaleiðtogarnir m.a. að fjármálakreppan sé einhvert erfiðasta viðfangefni í efnahagsmálum, sem þeir hafi þurft að fást við. „Við munum bregðast hratt og af festu við væntanlegu samdráttarskeiði," segir síðan.