Milljarða tap hjá Exista

Tap á rekstri Exista eftir skatta nam 170 milljónum evra, jafnvirði 24 milljarða króna, á fyrstu níu mánuðum ársins. Á sama tímabili í fyrra var 869 milljóna evra hagnaður af rekstri félagsins.

Á þriðja ársfjórðungi var tap félagsins 87,8 milljónir evra eftir skatta.

Heildareignir námu 6,3 milljörðum evra í lok september. Bókfært eigið fé nam 2 milljörðum evra í lok september. Heildarskuldir lækkuðu um 1,4 milljarða evra, eða 24% fyrstu níu mánuði ársins.Handbært fé nam 288 milljónum evra í lok september • Eiginfjárhlutfall var 36% (með víkjandi skuldabréfum) í lok tímabilsins.

Í tilkynningu frá félaginu segir, að fyrir hrun fjármálamarkaðarins hafi bókfært eigið fé Exista numið 2 milljörðum evra, eitt það mesta á meðal íslenskra fyrirtækja. Við þrot Kaupþings varð Exista, sem stærsti eigandi verðmætasta fyrirtækis landsins, fyrir þungu höggi. Þar eð eignarhluturinn í Kaupþingi hafi einungis að litlu leyti verið veðsettur haldi Exista velli.

„Efnhagsreikningur Exista hefur minnkað og skuldir greiddar niður. Lögð hefur verið áhersla á trausta lausafjárstöðu. Á þriðja ársfjórðungi greiddi Exista niður lán sín fyrir 300 milljónir evra. Þrátt fyrir markvissan undirbúning félagsins fyrir erfiða markaði varð hrun fjármálakerfisins í október miklu dýpra og víðtækara en unnt var að sjá fyrir. Staða Exista er óljós um þessar mundir. Við hrun íslensku bankanna átti félagið eignir umfram skuldir í bankakerfinu og er enn ekki ljóst hvort og þá hvenær skuldbindingum bankanna gagnvart Exista verður fullnægt. Þess vegna liggur eignastaða félagsins ekki fyrir. Þrátt fyrir óvissuna teljum við félagið hafa burði til þess að standa af sér áföllin. Innan Exista eru öflug íslensk fyrirtæki, svo sem VÍS, Lýsing og Síminn. Í lok október samþykktu hluthafar afskráningu félagsins úr Kauphöllinni og veittu víðtækar heimildir til aðgerða til þess að vinna að framtíðarlausnum fyrir félagið. Á þeim grundvelli er nú unnið að því að treysta framtíð Exista," segir Lýður Guðmundsson, stjórnarformaður Exista, í tilkynningu fyrirtækisins.

Tilkynning Exista

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK