Verð á olíu hefur haldið áfram að lækka í dag. Fór verðið a markaði í Lundúnum í rúma 46 dali tunnan og hafði þá ekki verið lægra í nærri fjögur ár. Verðið hefur hækkað að nýju og er 47,43 dalir tunnan en hefur þó lækkað um rúm 50 sent frá því í gær.