Englandsbanki tilkynnti rétt í þessu að hann hefði lækkað stýrivexti úr 3% í 2%. Er lækkunin í samræmi við spár sérfræðinga á markaði en um er að ræða lægstu stýrivexti í meira en hálfa öld.
Margir sérfræðingar á markaði hafa fagnað lækkuninni og á hún að vera til þess fallin að örva breskt efnahagslíf, að því er fram kemur á vef BBC.
Hetal Mehta, hjá Ernst & Young Item Club, segir að lækkunin sé „rétt meðal á réttum tíma.“
Englandsbanki sagði að það væri lífsnauðsynlegt að bankar skiluðu lækkuninni til fyrirtækja og annarra viðskiptavina.