Straumur lauk í dag fjármögnun upp á 133 milljónir evra. Fjármögnunin bætir lausafjárstöðu bankans og verður nýtt til að endurgreiða sambankalán að upphæð 200 milljónir evra sem gjaldfellur 9. desember næstkomandi. Gjalddagi þessarar nýju fjármögnunar er 15. maí 2009. Straumur telur að í kjölfar þessa geti bankinn haldið áfram að standa við allar sínar fjárhagslegu skuldbindingar, að því er fram kemur í tilkynningu frá bankanum.
Willam Fall, forstjóri Straums, segir í tilkynningu að fjármögnunin sé mikilvægur áfangi fyrir bankann, sérstaklega í ljósi núverandi markaðsaðstæðna. „Þetta er ennfremur jákvætt skref fyrir íslenskan fjármálamarkað í ljósi þeirra erfiðleika sem Ísland hefur staðið frammi fyrir undafarna mánuði. Straumur mun, í samræmi við áður yfirlýsta stefnu, halda áfram að byggja upp alhliða fjárfestingabanka ásamt því að draga úr efnahagsreikning sínum og viðhalda fjárhagslegum styrk,“ segir Fall.