Bandarísku flugvélaverksmiðjurnar Boeing hafa nú einu sinni enn frestað tilraunaflugi og afhendingu nýju 787 flugvélarinnar, Dreamliner, eða Draumfarans, eins og vélin hefur verið kölluð. Er nú gert ráð fyrir að fyrsta vélin verði afhent í byrjun árs 2010. AP-fréttastofna segir frá þessu.
Fyrir einungis rúmum mánuði síðan var stefnt að því að fyrsta flug Draumfarans yrði á næsta ári en hún átti vélin átti upphaflega að fara í loftið fyrir lok þessa árs. Fjölmargt hefur haft áhrif á framleiðsluferlið, þar á meðal verkföll og ýmiss konar tæknivandamál.