Gengi krónunnar veiktist um 1,2% í dag á millibankamarkaði. Gengisvísitalan stendur í 203,5 stigum en var í 201 stigi við upphaf viðskipta, samkvæmt upplýsingum frá gjaldeyrisborði Glitnis. Gengi Bandaríkjadals er 117 krónur, pundið er 174,90 krónur, evran er 154,90 krónur og danska krónan stendur í 20,793 krónum.